„Orð geta skilið eftir sig ör“ - reynslusaga
Þetta er saga af litlum dreng sem var afar geðvondur. Faðir hans gaf honum naglapakka og sagði honum að í hvert sinn sem hann missti stjórn á skapi sínu skyldi hann negla einn nagla í bakhlið grindverksins.
Fyrsta daginn negldi drengurinn 37 nagla í grindverkið. Næstu vikurnar lærði hann að hafa stjórn á reiði sinni og fjöldi nelgdra nagla minkaði dag frá degi. Hann uppgövaði að það var auðveldara að hafa stjórn á skapi sínu heldur en að negla alla þessa nagla í girðinguna.
Loksins rann upp sá dagur að engin nagli var negldur í girðinguna og drengurinn hafði lært að hafa stjórn á sér. Hann sagði föður sínum þetta og faðirinn lagði til að nú drægi drengurinn út einn nagla fyrir hvern dag sem hann hefði stjórn á sér.
Dagarnir liðu og loks gat drengurinn sagt föður sínum að allir naglarnir væru horfnir.
Faðirinn tók soninn við hönd sér og leiddi hann að grindverkinu. “ Þú hefur staðið þig með prýði, en sjáðu öll götin á grindverkinu. Það verður aldrei eins og það var áður.
Þegar þú segir eitthvað í reiði, skilur það eftir sig ör eins og naglarnir.
Þú getur stungið mann með hníf og dregið hnífinn aftur úr sárinu en það er alveg sama hve oft þú biðst fyrirgefningar, örin eru þarna samt áfram. Ör sem orð skilja eftir sig geta verið jafn slæm og líkamleg ör.
Ekki vera sá sem hrindir öðrum, hrindir annarri manneskju niður í skítinn.
Vertu sá sem reisir hana upp, hjálpar henni að bera erfiðleikana.
Vinir eru sjaldgæfir eins og demantar. Þeir hlusta á þig og opna hjarta sitt fyrir þér. Sýndu vinum þínum hve mikið þú metur þá og vertu gòður vinur.