,,Mér leið illa í skólanum, varð fyrir einelti og kveið fyrir hverjum degi“.
Af hverju byrjar ungt fólk að nota áfengi eða fíkniefni ?
,,Mér leið illa í skólanum , varð fyrir einelti og kveið fyrir hverjum degi“.
„Mér varð rétt pípa í partýi og ég bara prufaði“
„Mér var sagt að hass hefði róandi áhrif á mann‘‘
,, Fannst það ,,cool” Vildi bara vera eins og eldri krakkar”
,,Veit það ekki ,vildi vera með, var í hópi með eldri krökkum og ætli það hafi ekki bara verið einhver þrýstingur”
,,það var svo töff “
Þetta eru svör nokkurra unglinga sem voru í meðferð til þess að hætta neyslu á vímuefnum. Víst er að sú barátta verður löng og erfið og skilur eftir sig ör alla ævi. Öll neyttu þau fíkniefna í fyrsta skipti í heimahúsi hjá ,,kunningja” og stóðu venjulega frammi fyrir því að þurfa að taka ákvörðun um það fyrirvaralaust um hvort þau ætluðu að prófa.
Öll féllu þau á þessu prófi.
Þau áttu það öll sameiginlegt að þau eyddu litlum tíma með foreldrum sínum á unglingsárunum.
Að vera í góðum tengslum við barnið er eitt það mikilvægasta sem foreldrar geta lagt af mörkum til að hjálpa barninu sínu að forðast neyslu á áfengi og fíkniefnum.