Ársskýrsla 2024
Nýtt ár lagðist vel í okkur og starfið fór vel af stað á árinu 2024.
Fyrsta Verkefni ársins í Tónasmiðjunni var „HETJUR“ – ROKKUM fyrir langveik börn og styrkja þar með Umhyggju félag langveikra barna. Ákveðið var að hendast í tvenna tónleika í upphafi árs , eina Í H’usavíkurkirkju og heimasækja Menningarhúsið BERG á Dalvík og bjóða þeim uppá Tónasmiðjuna.
þátttakendur voru um 40 einstaklingar, flottur hópur á ýmsum aldri ásamt heiðursgestum. Heiðursgestir á Húsavík voru söngvararnir Diljá Pétursdóttir og Krummi BJörgvinsson en á Dalvík þau Íris Lind Verudóttir og Sigurður Ingimarsson. Við buðum einnig sex ungmennum á Dalvíkursvæðinu að taka þátt í sýningunni þar og gekk það starf VEL. Báðir þessir tónleikar voru virkilega FLOTTIR , góð mæting og styrktum við Umhyggju um samtals 500 þúsund krónur.
(Í kringum þetta verkefni seldum við auk þess merkta penna.)
Sumarið kom og áfram var haldið og við byrjuðum að undirbúa okkur fyrir næstu sýningu og verkefni því tengt. Okkar árlega verkefni „Aðeins eitt LÍF“ fór af stað til styrktar Píeta samtökunum á Akureyri í tengslum við 10. september sem er alþjóðlegur sjálfsvígs forvarnadagur og er þetta sjöunda árið sem við erum með verkefni tengt þeim degi. Um 40 manns tóku þátt í þessari sýningu þar á meðal heiðursgesturinn Magni Ásgeirsson. Verkefnið gekk vel, full kirkja og styrktum við Píeta samtökin á Akureyri um 500 þúsund krónur sem var ágóði af tónleikunum. En þar með höfum við styrkt Píeta núna samtals um eina og hálfa milljón króna s.l. fjórar sýningar tengt 10. Sept og munum við halda því áfram.
Auk þess að vera að æfa og undirbúa þessa sýningu sumarið ´23 spiluðum við í skrúðgöngunni á 17. Júní. Á Mærudögum héldum við FLOTTA tónleika á aðalsviði hátíðarinnar þar sem FLOTTUR hópur frá okkur kom fram um daginn og fékk mikið hrós fyrir.
Eftir sumarið var ráðist í næsta verkefni sem var jólasýningin okkar “Jólin þín og mín” sem var núna haldin í sjötta skiptið og orðin fastur punktur í aðventuhaldi í Norðurþingi . Hópurinn stækkaði töluvert og núna vorum saman komin um 80 þátttakendur á ýmsum aldri , fjölbreyttur hópur krakkar og eldri reynsluboltar. Aftur ákváðum við að setja þá upp í íþróttahöllinni. Æft var stíft og var mikill undirbúningur, enda krefjandi verkefni og stefnan sett á að toppa okkur einu sinni enn og halda GLÆSILEGUSTU sýninguna okkar. Heiðursgestir að þessu sinni var verndari starfsins okkar hún Hrafnhildur Ýr söngkona og reynsluboltinn og Akureyringurinn Ívar Helgason. Auk þeirra voru sérstakir gestir magnaður stúlknahópur frá STEPS dancecenter frá Akureyri og flottastik karlakór norðanheiða þó víða væri leitað ásamt stjórnanda þeirra Karlakórinn HREIMUR. Þakklæti var okkur efst í huga til allra sem koma að þessu með okkur þegar við gengum frá þessu verkefni. Æðisleg stemmning, ásamt frábærum tónleikagestum. Yndisleg stund sem gaf okkur mikiđ. Þetta verkefni okkar var æðislegt en um leiđ krefjandi ferđalag, sem náði hápunkti sínum með þessum FLOTTU tónleikum. Mikiđ skipulag og margar æfingar sem skilađi sèr svo sannarlega. Í ár eins og undanfarin ár styrktum við Velferđarsjòđ Þingeyinga, en alls safnađist 700 þùsund krònur í kringum jólasýninguna.
Á þessu herrans ári 2024 höfum við styrkt þrjú góð málefni um samtals 1 milljón og 750 þúsund krónur. Umhyggju , Píeta og Velferðarsjóð Þingeyinga.
Auk þess í Desember skemmtum við á Jólafundi Kiwanis og á þorláksmessukvöld komum við svo fram í versluninni Heimamenn.
Við erum afar stolt af að vera að fara inní níunda starfsár Tònasmiđjunnar á Húsavík og hefur starf okkar stöðugt verið að stækka, þar sem við komum saman einstaklingum á öllum aldri, gerum eitthvađ skemmtilegt saman međ jákvætt forvarnargildi og gefum af okkur þannig til samfélagsins og til góðra málefna. Núna í Desember gáfum við auk þess jólagjafir til heldra fólksins okkar í Hvammi og Skógarbrekku eins og við höfum gert undanfarin 5 ár og auk þess inná Meðferðarheimilið Hlaðgerðarkot sem rekið er af Samhjálp.
Heimasíðan okkar gengur vel, og greinilegt að fólk er að lesa, fræðast og hlusta vel á það efni sem er þar inni og gott að fólk er að nýta sér þessi verkfæri og munum við uppfæra það betur á komandi ári. Gaman er að segja frá því að það eru um 600 heimaóknir þar inn á mánuði hverjum.
Viđ erum núna þegar byrjuđ ađ leggja drög ađ næsta verkefni sem byrjar hjá okkur núna í Janùar og verður ROKKsýning ì maì. Þar sem við ætlum að ROKKA gegn krabbameini til styrktar Ljósinu og Krabbameinsfélagi Húsavíkur. - Endilega fylgist með..
Um leið og við óskum ykkur öllum velfarnaðar á nýju ári 2025 viljum við þakka öllum þeim sem hafa sýnt okkur áhuga , hvatt okkur áfram, styrkt okkur og/eða rétt okkur hjálparhönd með einum eða öðrum hætti.
Án ykkar væri þetta ekki hægt.
TAKK fyrir okkur!!!