Hversu mikilvægt er það ?

Hvert okkar ákveður fyrir sig hvað skiptir okkur mestu máli í lífinu en flest erum við sammála um að okkur hættir til að komast í uppnám yfir því sem litlu máli skiptir. Þetta slagorð minnir okkur á að rifja upp hvað það er sem hefur mest gildi í lífinu. 

Kostar það okkur æðruleysið að einhver sagði óvingjarnleg orð við okkur eða að við gleymdum einhverju sem við ætluðum okkur að gera ?

Hvað er svo mikilvægt að það sé fimm mínútna virði af óhamingju og vansæld ?

Og það sem er mikilvægt, 

Hversu mikilvægt er það, í dag ? 

Previous
Previous

Orð hafa mátt...

Next
Next

Einn dag í einu