Einn dag í einu
Meðan við rýnum í það ókomna og reynum að sjá fyrir atburði og samskipti í framtíðinni til að vera viðbúin öllu því sem mögulega getur komið upp á missum við af möguleikum dagsins í dag.
Framtíðin er ekki innan seilingar og flestum okkar gengur betur að takast á við verkefni jafnt sem kvíða einn dag í einu. Með því að nýta daginn í dag sem best getum við búið okkur undir það sem morgundagurinn ber í skauti sér en við erum engu betur undir það búin að takast á við erfiðleika í framtíðinni þó við sóum deginum í dag í að hafa áhyggjur af morgundeginum.
Erfiðleikar og sársauki í framtíðinni verður hvorki meiri né minni þó við veltum okkur upp úr áhyggjum yfir þeim í dag, við drögum aðeins þjáningar okkar á langinn.
Með því að lifa einn dag í einu gefst okkur kostur á að skipta óviðráðanlegum verkefnum niður í smærri og viðráðanlegri hluta og reynt að láta hverjum degi nægja sína þjáningu og gleði.