Hamingjan er ferðalag

Lengi vel fannst mér alltaf sem lífið væri rétt að byrja- þetta eina sanna líf. En það var alltaf eitthvað sem stóð í vegi fyrir því, eitthvað sem þurfti að yfirstíga fyrst, einhver ókláruð mál, tími sem þurfti að eyða í eitthvað, ógreiddar skuldir . síðan mundi lífið byrja. Dag einn rann upp fyrir mér allar þessar hindranir voru lífið sjálft.” Þetta viðhorf hjálpar okkur að skilja að það er engin leið að hamingjunni. Hamingjan er leiðin.

Njótum hverrar stundar sem við eigum. Njótum hennar enn frekar þegar okkur tekst að deila henni með öðrum sem er nógu sérstakur til að verja tíma okkar með. Og munum að tíminn bíður ekki eftir neinum. Hættu að bíða þar til þú hefur lokið námi eða þar til þú hefur misst fimm kíló eða bætt á þig fimm kílóum, þar til þú hefur eignast börn eða þar til þau flytjast að heiman, þar til þú byrjar að vinna eða þar til þú hefur sest í helgan stein þar til þú giftist eða þar til þú skilur, þar til á föstudagskvöld, þar til á sunnudagsmorgun, þar til þú færð þér nýjan bíl eða hús, þar til þú hefur borgað upp bílinn eða húsið, þar til í vor, þar til í sumar, þar til í haust, þar til í vetur, þar til lagið þitt byrjar, þar til þú ert búinn að fá þér í glas, þar til þú deyrð, þar til þú fæðist á ný.

Til þess eins að ákveða að það er enginn tími betri til að vera hamingjusamur en einmitt núna!

Hamingjan er ferðalag en ekki áfangastaður.

Previous
Previous

Vertu góð fyrirmynd

Next
Next

ÞÚ uppskerð eins og þú sáir