Réttur lífstíll
Því fyrr sem einstaklingur byrjar að nota vímuefni því meiri líkur eru á því að illa fari og erfitt verði að snúa aftur. Ekkert lögmál er um að fólk þurfi á vímu að halda og ekki er hægt að sýna fram á að nein jákvæð áhrif vímuefna á líkamann. Ásókn í vímuefni er frekar hægt að skýra með félagslegri þörf okkar að tilheyra hópi “ vera meðtekin “ af þeim sem maður umgengst. Þess vegna er þetta fyrst og fremst okkar val um lífsstíl og þess vegna er svo mikilvægt að maður hafi aðgang að réttum upplýsingum sem maður getur treyst, t.d. um raunveruleg áhrif vímuefna. Vinir koma og fara en eftir situr maður uppi með sjálfan sig alla tíð og á unglingsárum er maður varla búinn að fatta hver þessi “Ég” er. Þess vegna er skaði vímuefnanna mestur ef maður byrjar of ungur.
Ef þú ert í vandræðum með að segja nei ef vímuefni standa þér til boða, ættir þú að skoða Þessi tilsvör nokkurra unglinga, þar má sjá margar áhugaverðar ástæður sem nefndar eru fyrir því að þú bara sleppir því að byrja, hver og einn hefur sínar ástæðu.
Þú þarft sjálf/ur að hafa vit fyrir þér, Þegar þú stendur frammi fyrir þeirri spurningu að „bara“ prófa
Nei! Ég vil “EKKI” láta vímuefni eyðileggja öll mín framtíðarplön ....
vegna þess að það er ekki hægt að spóla til baka ef illa fer
vegna þess að ég er á kafi í tónlist og mér finnst ekki til betri tilfinning en að syngja með öllum líkamanum og finna fyrir hverri frumu, ef þið skiljið hvað ég á við
vegna þess að mig langar til að lifa heil
því ég er nokkuð forvitinn um framtíðina
því næstu ár gera mig að því sem ég verð, kannski alla ævi
vegna þess að ég er ekki tilbúinn að breytast í eitthvað annað en sjálfa mig
vegna þess að þannig get ég alltaf vitað hvað er að gerast og hverjir vinir mínir eru
Vegna þess að ég vil læra á sjálfa mig og geta sent öðrum rétt skilaboð
Vegna þess að ég er verulega einstakur og ég vill að fólk læri smám saman að meta mig fyrir það sem ég er
Vegna þess að ég ætla mér að verða besta mögulega útgáfan af mér
Vegna þess að þegar ég er ég finnst mér ég geta allt, svoleiðis vil ég vera
Vegna þess að það er nógu flókið að vera unglingur, þó maður bæti ekki ruglinu við líka
Vegna þess að vinur bróður míns dó útaf töflum sem hann tók og hann var samt búinn að segja mér að hann væri með allt á hreinu
Vegna þess að árin fram að tvítugu er maður í bakaraofninum og eins gott að taka ekki sénsinn á að opna of snemma því þá gæti allt farið í klessu