Jólasýning til styrktar Velferðarsjóði Þingeyinga

 

Um þessar mundir erum við farin að vinna að næstu sýningu Tónasmiðjunnar og gesta sem er jóla verkefnið Jólin þín og mín – fyrir þá sem minna mega sín, en 16.desember n.k. munum við standa fyrir stórum tónleikum í Húsavíkurkirkju klukkan 20:00 þar munu koma saman rúmlega 50 einstaklingar á öllum aldri þar sem sú yngtsa er aðeins 6 ára og sá elsti um 80 ára, 15 einsöngvarar , 12 manna hljómveit , bakraddasveit ásamt Sólseturskórnum og heiðursgesti okkar landsþekktu söngkonunni Helgu Möller, sem hefur m.a. sungið margar jólaperlurnar og erum við afar stolt af að fá hana til okkar og gefa af sér í þetta verkefni okkar. Öll innkoma af sýningunni er til styrkar Velferðarsjóði Þingeyinga.

Previous
Previous

Skjól stuðningsmiðstöð

Next
Next

Rokkum gegn sjálfsvígum