Það er til lausn!!!

Eitt sinn fyrir langa löngu var lítill sætur froskur sem féll ofan í risa stóra skál af rjóma. Litli froskurinn gat með engu móti komist uppúr skálinni en hélt þó áfram að spyrna frá sér í von um að komast uppúr. Hann spyrnti aftur, aftur og aftur þar til að rjóminn umbreyttist loks í smjör og þá gat litli sæti froskurinn hoppað úr skálinni á öruggan stað.

Þetta er saga um mig og þig. Við erum froskurinn. Við getum annað hvort lagt árar í bát og gefist upp þegar við mætum því sem virðist óyfirstíganleg hindrun, eða þá spyrnt frá okkur aftur, aftur og aftur þar til vanblessun umbreytist í blessun. Þú getur þó verið fullviss um það að þinn æðri máttur hver sem hann er vill að við lifum af þær orrustur sem við lendum í og sigrumst á okkar púkum, og skiptir engu um það hversu svart útlitið kunni að vera, þá er alltaf ljós á hinum endanum á göngunum.

Áskorunin okkar er sú að viðhalda okkar fullvissu og halda áfram að berjast hina góðu baráttu.
Haltu áfram að spyrna frá þér í dag og vertu viss um að það er til lausn á hverju því sem herjar að þér og virðist yfirþyrmandi.

http://www.thuskiptirmali.is/a-er-til-lausn

http://www.thuskiptirmali.is/a-er-til-laus

http://www.thuskiptirmali.is/

Previous
Previous

Horfðu á styrkleika þinn

Next
Next

Skjól stuðningsmiðstöð