Jólin þín og mín

STOLT og þakklæti er okkur efst í huga þegar við göngum frá þessu verkefni sem núna var að klárast. Jòlin þìn og mìn verkefni Tònasmiđjunnar og gesta Tónasmiðjan var núna haldið í þriðja skipti og náđi hápunkti sìnum í gærkveldi með glæsilegri tónleikasýningu. Virkilega hátíðleg stund í Húsavíkurkirkju með um 40 flytjendur á ýmsum aldri og góðum tónleikagestum , yndisleg stund sem gaf okkur mikiđ. ❤

Fyrir hönd Tónasmiðjunnar og ÞÚ skiptir máli langar okkur ađ þakka þeim sem komu ì Hùsavìkurkirkju og nutu stundarinnar međ okkur, öllum þeim flottu flytjendum sem tóku þátt og heiðursgestum okkar í þessu verkefni, þeim Rúnari Eff og Hrafnhildi Ýr Víglundsdóttir.

Takk ALLIR!! ❤

Þetta verkefni er bùiđ ađ vera afar skemmtilegt og um leiđ krefjandi ferđalag, sem náði hápunkti sínum með þessari góðu stund, mikiđ skipulag og margar æfingar liggja að baki sem skiluđu sèr svo sannarlega. Hòpurinn okkar stòđ sig svo frábærlega og þad gleður okkur mikiđ ađ geta um leið styrkt gott málefni, enn við styrktum að þessu sinni Velferđarsjòđ Þingeyinga um 200 þús kr og lögðum við það inná reikning sjóðsins í dag.

Við erum afar stolt af að vera núna að stýra Tònasmiđjunni fimmta árið á Húsavík og hefur starf okkar stöðugt verið að stækka, þar sem við komum saman einstaklingum á öllum aldri, gerum eitthvađ lifandi og skemmtilegt saman međ jákvætt forvarnargildi og gefum af okkur þannig til samfélagsins og til góðra málefna.

Núna í desember styrktum við auk þess þrjá einstaklinga og fjölskyldur þeirra úr okkar samfélagi Norðurþingi um 70 þús kr hvert. Einstaklinga sem hafa verið að glíma við alvarleg veikindi. Einnig gáfum við jólagjafir til heldra fólksins okkar í Hvammi og Skógarbrekku eins og við höfum gert undanfarin 3 ár.

Viđ erum núna þegar byrjuđ ađ leggja drög ađ næsta stóra verkefni Tònasmiđjunnar sem byrjar núna ì janùar n.k. Eftir gott jólafrì, byrjum við á fullu aftur og verður glæsileg ROKKsýning ì maì n.k. þar sem við ætlum að ROKKA gegn krabbameini með verkefni og tónleikasýningu til styrktar Ljósinu og Krabbameinsfélag Þingeyinga. Endilega fylgist međ og TAKK fyrir okkur.

GLEÐILEG JÓL ❤

Previous
Previous

Gleðilegt nýtt ár

Next
Next

Hjálparhönd